Fyrrverandi kærasti Lady Gaga, Taylor Kinney, er búinn að átta sig á af hverju hann missti þegar þau hættu saman. Hann er enn ástfanginn af henni þrátt fyrir að hún sé búin að finna ástina að nýju í umboðsmanni stjarnanna Christian Carino.
Auglýsing
Taylor virðist hafa leitað stíft að nýrri kærustu: „Taylor eyddi síðasta ári í að taka nýja konu með sér heim næstum á hverju kvöldi,“ segir innanbúðarmaður. „Nú gerir hann sér grein fyrir að engin af þessum stelpum kemst í hálfkvisti við stjörnuna.“ Auglýsing
Taylor hefur meira að segja verið að mæta á tónleika til að ná tali af henni. „Gaga saknar Taylors og þykir vænt um hann en þau eru tvær manneskjur sem vilja alls ekki það sama út úr lífinu.“