Leikkonan Lara Flynn Boyle hefur munað sinn fífill fegurri, en nú eru mörg ár síðan hún sló í gegn í þáttunum Twin Peaks. Náðust ljósmyndir af henni þamba viskí bakvið stýri á hádegi á bílastæði stórmarkaðs í Los Angeles.
Lara hefur verið inn og út úr AA (Alcoholics Anonymous) í mörg ár, og sagði móðir hennar eitt sinn í viðtali að Lara hefði verið virkur þátttakandi í AA frá níu ára aldri: „Það er útaf pabba hennar, við sækjum það eins og kirkju“ gaf hún sem útskýringu.
Annar heimildarmaður sagði: „Hún er oft á AA fundum, ég hef rekist á hana hér og þar um borgina á fundum.“
Lara komst í fréttirnar á síðasta ári vegna meintra lýtaaðgerða en mikill munur er á henni þá og nú.
Lara kom opinberlega fram í fyrra út af máli Harvey Weinstein og kynferðislegrar misnotkunar. Sagðist hún hafa verið „misrétti beitt, allan sinn feril.“