Selena Gomez hefur nú verið í tvær vikur í meðferð í New York vegna misnotkunar á eiturlyfjum. Selena sem er 25 ára var nýbúin að endurnýja samband sitt við Justin Bieber og hafa þau víst „djammað stíft“ að sögn kunnugra: „Justin sér um hana núna, hvað varðar ferðalög og öryggisgæslu og hafa þau djammað mikið, meira að segja fyrir þau.“
Selena hefur nú forðast móður sína, Mandy Teefey, því hún á erfitt með að vera hreinskilin við hana: „Selena skipti (aftur) um númer til að forðast Mandy. Mandy talar við Selenu í gegnum Justin og móður hans,“ segir nafnlaus heimildarmaður í viðtali við Radar.
Annar segir: „Selena vill ekki falla aftur í sama farið og áður, hún vill vera heilbrigð og lifa heilbrigðu lífi.“
Selena hefur verið að nota kokteil af lyfjum sem hugsanlega gætu verið banvæn: Lunesta, Ambien, Klonopin og Xanax, sem eru flest kvíðastillandi. Fór hún í meðferð árið 2014, 2016 og aftur núna: „Allir eru áhyggjufullir vegna hennar,“ segir vinur hennar.