Vertu sykurlaus með okkur í 14 daga ókeypis áskorun. Júlía hjá Lifðu til fulls er að standa fyrir áskorun og erum við að slefa yfir uppskriftum sem eru í boði…Það er virkilega hægt að borða gott þrátt fyrir að sé ekki sykur í því! Markmið áskorunar er prófa eina nýja uppskrift á dag sem Júlía kveður ekki taka nema 10 mín aukalega og síðan má taka sykurleysið eins langt og hver óskar sér! Skráning er hafin hér
Verður þú með?
Þessi drykkur inniheldur myntu, sem er frábær fyrir bætta meltingu og einbeitingu. Það má sjálfsagt nota steinselju í staðinn eða jafnvel bæði fyrir ævintýragjarna en steinselja er talin vera ein helsta fegurðarfæðan.
Bæði mynta og steinselja eru mjög góðar kryddjurtir til að nota í græna djúsa. Notið það íslenska græna salat sem fæst hverju sinni í drykkinn.
Grænt Orkuskot
1 gúrka
2 græn epli
1 sítróna
1 límóna
handfylli spínat eða grænkál
handfylli fersk mynta
engiferbútur
–
Setjið allt í gegnum safapressu og njótið.
Best er að nota safapressu sem kaldpressar því hún varðveitir næringarefni betur og eykur geymsluþol drykkjar. Djúsinn geymist í 3 daga í kæli.
Ert þú tilbúin/n í sykurleysið?
ÓKEYPIS 14 daga sykurlaus áskorun! Skráðu þig og fáðu glænýjar og girnilega uppskriftir sendar í hverri viku. Við byrjum 22. janúar! Skráningu fylgja uppskriftir, innkaupalisti, stuðningur og ráð til þess að hafa sig af stað í lífsstílsbreytinguna. http://lifdutilfulls.is/14-daga-sykurlaus/