Nú er meira en ár síðan stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt skildu. Er hún komin með nýjan mann í líf sitt, hinn 38 ára praCh Ly – sem er súperstjarna í heimalandi sínu, Kambódíu. Hann er rappari og kvikmyndagerðarmaður og kynntust þau í gegnum sameiginlegan vin, Loung Ung. Vinir parsins segja að þau tvö séu orðin ótrúlega náin eftir að hafa rætt kambódísk stjórnmál og góðgerðamál, sem standa Angie nálægt hjarta þar sem hún ættleiddi son sinn Maddox frá landinu árið 2001 þegar það stóð höllum fæti vegna stríðsreksturs.
Angelina er með kambódískan ríkisborgararétt síðan árið 2005.
praCh hefur sést reglulega þar sem Angelina býr í Kambódíu, Los Feliz hverfinu, þar sem hann sækir krakkana hennar og fer með þau í bæinn eða á ströndina.
Hafa þau sést í Búddaklaustrum, búðum og matvöruverslunum.
praCh er fæddur í útrýmingarbúðum Pol Pot en flúði til Bandaríkjanna sem barn þar sem þau settust að á Long Beach, sem er hættulegt hverfi í Los Angeles.
Er praCh talinn „fyrsta kambódíska rappstjarnan” en hann rappar bæði á ensku og kambódíska tungumálinu khmer. Vinur hans kom honum á kortið.
Segja heimildir Radar að praCh sé mjög mikilvægur andlegur leiðtogi Maddox, sem er orðinn 15 ára.
Vinir parsins segja Angelinu vera afar ástfangna: „Hún hefur ekki litið svo vel ut síðan þau skildu.
Í september bauð Angelina praCh á forsýningu kvikmyndar sinnar, First They Killed My Father á kambódískri kvikmyndahátíð. Síðan í september hafa þau sést við ótal tilefni saman.
Við hlökkum til að fylgjast með þessu sambandi og flytjum fréttir um leið og þær berast…!