Söngkonan Lady Gaga nýtur nú lífsins á sólarströnd í Costa Rica eftir að hafa tilkynnt um að hún sé flutt til Las Vegas. Um tvær milljónir hafa líkað við meðfylgjandi mynd, enda er Gaga afar flott kona.
Hún segir: „Sögusagnirnar eru réttar. Ég er flutt til Las Vegas, ég var búin til fyrir þessa borg og ég get ekki beðið eftir að sýna og lýsa uppp Park Theater eins og aldrei áður…þetta er bara byrjun á nýju tímabili.“
A post shared by Lady Gaga (@ladygaga) on
Gaga mun þéna meira en 100 milljónir fyrir hverja sýningu og eru a.m.k. 74 sýningar staðfestar. Einnig er sagt að hún hafi trúlofast umboðsmanninum sínum Christian Carino á dögunum. Við hlökkum til að frétta meira af henni!