Disney World í Flórídaríki hefur bannað „ónáðið ekki“ (e. „Do Not Disturb“) spjöld á dyrum á hótelherbergjunum sínum. Hafa þau verið tekin niður í fjórum hótelum keðjunnar, Polynesian Village Resort, Grand Floridian Resort & Spa, Contemporary Resort og Bay Lake Tower hótelunum.
Er búist við því að þau verði fjarlægð af öllum hótelum keðjunnar á næstunni. Gestir fá þess í stað spjald sem segir: „Herbergi upptekið“ eða (e. „Room Occupied“) í staðinn sem leyfir ræstiteymi og starfsfólki hótelsins að fara inn í herbergin samkvæmt nýrri stefnu hótelanna: „Þau verða að banka áður en þau fara inn, en geta samt farið inn,“ segir í dagblaðinu Orlando Sentinel. Hefur gestum verið tilkynnt þetta frá því í síðustu viku.
Álitið er að ákvörðunin sé viðbrögð við skotárásinni í Las Vegas í október á síðasta ári, þrátt fyrir að Disney vilji ekki staðfesta það. Byssubrjálæðingurinn Stephen Paddock myrti 59 manns og særði 500 með því að skjóta frá herbergi sínu á 32. hæð. Hafði hann ótrúlegt magn skotvopna og skota í herberginu sínu áður en hann lét til skarar skríða. Það uppgötvaðist þó ekki þar sem hann lét spjaldið „ónáðið ekki“ hanga utan á hurðinni.