Þau geta ekki verið aðskilin: Justin Bieber, 23, hefur nú sést á Cabo San Lucas í Mexíkó njótandi sín á ströndinni. Selena er á sama stað í einkavillu með vinkonum sínum, en nóttin kostar tæpar tvær milljónir isk.
Þrátt fyrir að ekki hafi náðst myndir af þeim saman hljóta þau að vera að hittast – varla er um tilviljun að ræða.
Móðir Selenu er ekki mjög hrifin af því að dóttir hennar sé aftur komin í samband með Justin. Mæður hafa þó ekki mikið að segja um þegar ástin er annars vegar og milli þeirra virðist vera sterk taug.
Árið 2017 var stormasamt hjá Selenu en hún átti í stuttu en sjóðheitu ástarsambandi við The Weeknd og fékk nýrnaígræðslu frá bestu vinkonu sinni.