ATH: Ekki lesa þetta ef þið ekki búin með aðra seríu! Ef þið eruð ekki búin að horfa á hana, mælum við með því…margir eru á því að hún sé betri en sú fyrsta.
Þeir sem eru hinsvegar búnir að sjá aðra seríuna ættu að vita af þessu. Chief Hopper var með afturlit í þáttunum í fyrstu seríunni þar sem hann minntist fjölskyldu sinnar. Við sáum dóttir hans, Söru, fá kvíðakast og svo seinna í þættinum var hún á spítalanum þar sem hún lét síðan lífið.
Skoðum þetta afturlit aðeins betur – tekurðu eftir teygjunni í hári Söru?
Sjáðu nú það sem Hopper er með á úlnliðnum. JÁ, hann er með teygjuna.
Hann hélt áfram að vera með það löngu eftir að Sara féll frá. Þetta skot er úr fyrstu séríunni, fimmta þætti þar sem Hopper er að tala við Diane, sína fyrrverandi í símann.
Svo í annarri séríunni, sjáðu hvað Eleven er með um höndina á Snow Ball (ballinu). Það lítur út fyrir að Hopper hafi gefið henni það!
Svo ættleiðir hann hana…er þetta ekki fallegt? *snökt*