Það er mikilvægt að láta sér líða vel með þeim sem manni þykir vænt um og hér skiptir kynlífið miklu máli, óháð aldri og heilsu.
Sjö af hverjum 10 körlum með sykursýki eiga í vanda með stinningu. Engin ástæða er til að sætta sig við það – því að ýmislegt er hægt að gera við því. Í þessari grein er fjallað um vanda sem tengist stinningu og hvað unnt sé að gera.
Á ég í vandræðum með stinningu?
Ef þú á erfitt með að láta þér rísa hold þannig að ekki sé hægt að tala um viðunandi kynlíf þá er kominn upp nokkur vandi. En þótt um ristruflun sé að ræða þýðir það ekki að þú sért ófrjór og getir ekki haft sáðlát eða fengið fullnægingu.
Er samhengi milli ristruflana og sykursýki?
- Já, það er augljóst samhengi þarna í milli. Ristruflun er einn þeirra kvilla sem geta fylgt sykursýki. Um 70% sykursjúkra karla sem komnir eru yfir fertugt lenda í vandræðum með stinningu. Hjá hluta þeirra er ristruflun einmitt fyrsta vísbending þess að þeir séu komnir með sykursýki.
- Áður var talið að ristruflanir væru sálfræðilegt vandamál en nú vitum við að þær eru í flestum tilvikum tengdar líkamlegum þáttum. Sykursýki er reyndar algengasta líkamlega orsök ristruflana.
- Sykursýki getur valdið skemmdum bæði á æðum og taugum í limnum og af því stafar stinningarvandinn. Æðarnar þrengjast og verða ekki eins teygjanlegar vegna æðakölkunar, og taugabólga hefur áhrif á taugarnar.
Er unnt að meðhöndla vandann?
Það má meðhöndla ristruflun hjá langflestum. Margar leiðir til meðhöndlunar eru fyrir hendi og því engin ástæða til að sætta sig bara við að búa við þessi vandkvæði.
Hvað get ég gert sjálfur?
Það er ýmislegt hægt að gera:
- Mikilvægast er að geta rætt þennan vanda við maka og einnig við lækni. Margir karlar halda að þeir séu þeir einu sem eiga við þetta vandamál að stríða, þetta sé bara „eitthvað sem kemur með aldrinum“. Það er kannski ekki auðvelt að ræða þetta mál en því fyrr sem tekið er á því, þeim mun fyrr er hægt að komast að því hvaða meðhöndlun hentar best.
- Ef þú reykir eða neytir mikils áfengis getur það aukið á vandann. Þú gætir rætt við lækninn um að fá aðstoð hans við að minnka eða hætta reykingum og drykkju.
- Ýmis lyf geta orsakað vanda við stinningu eða aukið á þann vanda sem fyrir er. Einkum er um að ræða lyf við háum blóðþrýstingi, flogaveiki og þunglyndi auk vatnslosandi lyfja. Ef þú álítur að vandinn tengist nýjum lyfjum sem þú hefur fengið er mikilvægt að láta lækninn vita.
Hvers konar meðhöndlun á ég að velja?
Læknirinn getur leiðbeint þér um ýmsa möguleika til meðhöndlunar. Það er yfirleitt ekki þörf á að fara í miklar rannsóknir áður en meðhöndlun hefst. Þú þarft hins vegar að ræða við lækni um hvað hafi angrað þig og hvaða lyf þú tekur. Þú skalt einnig láta taka hjartalínurit (EKG, þar sem eru sett rafskaut á brjóstið) og mæla blóðþrýsting.
Það er óhætt að taka lyf við ristruflun ef þess er gætt að:
- fá lyfin með lyfseðli frá lækni.
- ræða við lækni um fyrri sjúkdóma og önnur lyf áður en meðhöndlun hefst.
- ræða við lækni ef aukaverkanir koma fram.
- fylgja ráðum læknis um skammtastærð.
Fimm mismunandi aðferðir til meðhöndlunar á vandanum
- Töflur
Tvenns konar töflur til meðhöndlunar á ristruflun eru fyrir hendi. Í báðum tilvikum þarf að hafa lyfseðil. Unnið er að fleiri slíkum lyfjum sem enn hafa ekki fengist viðurkennd.
Töflurnar eru ýmist teknar með vatni eða lagðar undir tunguna. Töflurnar virka aðeins við kynörvun. - Sprautur
Lyf í sprautuformi við ristruflun er til. Því er sprautað í hliðina á limnum með mjórri sprautunál. Sprautan líkist insúlínsprautu. Stinning verður án kynörvunar. Lyfið virkar hjá um 7 körlum af hverjum 10.
Helsti ókosturinn er að þurfa að stinga í liminn í hvert sinn sem stinning á að nást. Einn til þrír af hverjum 10 kenna sársauka í lim í tengslum við sprautunina og einn og einn fær ör.
- Viðtalsmeðhöndlun
Sumir karlar lenda í vandræðum með stinningu í sambandi við sálarstríð eða þunglyndi. Vandinn skapast oft skyndilega og án þess að um aðra sjúkdóma sé að ræða. Í slíkum tilvikum er gagnlegt að fá viðtal hjá lækni eða kynlífsfræðingi – e.t.v. ásamt maka. Hægt er að fá tilvísun á kynlífsfræðing hjá heimilislækni. - Auglýsing
- Risdæla
Ef ekki er vilji til að nota lyf við ristruflun – eða ef lyfin virka ekki – geta sumir karlar haft gagn af risdælu. Útbúnaðurinn samanstendur af sívölu röri, dælu og teygju. Rörið er sett utan um liminn, og dælan orsakar undirþrýsting í rörinu. Þannig sogast blóð fram í liminn og stinning verður. Til að hún haldist er teygju smeygt um rót limsins áður en rörið er fjarlægt.
Dælan virkar vel en er dálítið erfið í notkun. Limurinn er blár og kaldur svo lengi sem teygjan er um hann og aðeins fæst stinning í fjærenda hans. Því er eins og hann sé búinn hjöruliðum. Muna verður að fjarlægja teygjuna 30 mínútum eftir að henni er komið fyrir til að koma í veg fyrir vefjaskemmdir.
Dæluna er hægt að fá hjá sérfræðingi í þvagfærasjúkdómum og getur heimilislæknir vísað á hann. Hugsanlega má fá hana lánaða til reynslu. Síðan er hægt að kaupa slíka dælu í kynlífsverslunum eða gegnum Netið.
- Aðgerð
Mjög fáir fara í aðgerð vegna ristruflana. Rannsókn og aðgerð fer fram hjá þvagfæralækni sem heimilislæknir vísar á. Um er að ræða tvær tegundir aðgerða:
* Reðurstólpar
Uppdælanlegu stólparnir eru samsettir úr þremur einingum: stólpa, dælu og geymi. Þessar einingar geta verið tengdar með slöngum eða verið sambyggðar. Við að setja dæluna af stað, dælist vökvi frá geyminum, sem staðsettur er í pungnum, í stólpann. Þegar óskað er eftir að stinningu ljúki er dælan stöðvuð og vökvinn rennur til baka í geyminn. Sú stinning sem næst við uppblásanlega og þá sérstaklega þriggja þátta stólpann, minnir einna mest á eðlilegt ris. Mjög ánægjulegur árangur hefur náðst af ísetningu þeirra. Þau vandamál sem geta komið strax eru sýkingar. Síðan getur komið fram leki á vökva í kerfinu. Bæði vandamálin geta krafist aðgerða.
* Æðaaðgerð
Sumir karlar eiga í erfiðleikum með stinningu vegna þess að blóðið sem fer inn í liminn og veldur stinningu rennur strax burt. Slíkan „leka“ má stöðva með aðgerð.
Hjá heimilislækni er hægt að fá meiri upplýsingar um kosti, óþægindi, aukaverkanir og reynslu af einstökum meðhöndlunarleiðum.
Hvað kostar að fá meðhöndlun við þessum vanda?
Töflur
- Töflurnar kosta á bilinu 800-1.300 kr. í hvert skipti.
- Sprautur
1.400–1.900 kr. í hvert sinn (m.v. nokkurra ára verðskrá)
- Viðtalsmeðferð
Samtal við heimilislækni kostar um 1000 kr. Sé vísað til kynlífsfræðings á sjúkrahúsi eru viðtölin ókeypis en þar er oftast langur biðtími. Sé farið til sjálfstætt starfandi sálfræðings eða kynlífsfræðings kostar viðtalið 3.300–5.500 kr.(m.v. nokkurra ára verðskrá)
- Risdæla
U.þ.b. 11.000 kr – háð tegundum(m.v. nokkurra ára verðskrá)
- Aðgerð
Aðgerðin er ókeypis og sjaldan er um biðtíma að ræða.