„Mummy-shaming“ er nýyrði fyrir að dæma mömmur fyrir að vera ekki eins og aðrar (s.s. slut-shaming, fat-shaming). Fitnessfyrirsætan Sarah Stage fékk að finna fyrir þessu þegar hún póstaði myndum af sér á Instagram og sagðist vera komin átta mánuði á leið: „Hún er komin átta mánuði á leið og ég lít út fyrir að vera ófrísk, ekki hún?’ sagði einn aðdáandi.
Sumir trúðu því einfaldlega ekki að hún væri ófrísk og héldu að hún væri að ljúga eða eitthvað alvarlegt væri að. Sarah segir: „Ég mun aldrei skilja hvernig sumir geta tekið sér það vald að segja hvernig ófrísk kona á að líta út. Mér fannst ég vera á stærð við hús og var sagt að ég væri „of stór“ en nú er fólk að segja að barnið mitt sé „of lítið“ – í alvörunni fólk. Gefum óléttum konum grið, það er erfitt að búa til börn!“
Hefur þú óvenjulega meðgöngusögu að segja? Sendu okkur á sykur@sykur.is!