Voru næstum því búin að missa Graceland: Nú eru liðin 40 ár síðan poppgoðið Elvis Presley fór yfir móðuna miklu og voru mikil hátíðarhöld til að minnast hans á búgarði hans Graceland af því tilefni. Priscilla var mætt og dóttir þeirra Lisa Marie og segir Priscilla frá því í viðtali við Entertainment Tonight hvernig fjárhagserfiðleikar urðu næstum því þess valdandi að búgarðurinn var tekinn af þeim.
Auglýsing