Nú fá Titanic-aðdáendur sjokk: Myndir af leikurunum Leonardo DiCaprio og Kate Winslet hafa komið upp á yfirborðið og virðast þær sýna eitthvað meira en venjulegt vinasamband. Þessar myndir voru teknar af papparössum en þau sáust í villu sem Leo leigði í Frakklandi á dögunum.
Næstum 20 ár eru síðan Titanic var frumsýnd en þau hafa játað „ást“ sína á hvort öðru í gegnum tíðina. Um leið og þau hittust neistaði á milli þeirra en þau hafa bæði verið í samböndum allan þennan tíma, af og á.
Leo er nýhættur með Ninu Agdal og Kate er gift. Var hún þarna til að mæta á góðgerðarsamkomu sem var í nafni Leonardo.
„Leo féll strax fyrir henni um leið og þau hittust. Honum finnst hún fallegasta kona í heimi og hefur ekkert skipt um skoðun,“ segir vinur parsins í viðtali við Radar. „Þau hafa sama húmor og kemur ofboðslega vel saman.“