Móðir í miklu uppnámi fann, að hún hélt, kynlífsleikfang dóttur sinnar í uppþvottavélinni. Dóttirin fór á Reddit og deildi sögunni með notendum: „Svo mamma finnur þetta í uppþvottavélinni,“ skrifar hún við myndina. „Gefur mér það svo pakkað inn í handklæði og spyr hvað í fjandanum ég hafi sett í hana.“
Þá var alls ekki um víbrator að ræða, heldur bráðnuð vatnsflaska. Í hreinskilni sagt má skilja af hverju mamman hélt það!
„Þetta var flaska. Hún skrapp saman. Mamma talaði um það hversu vandræðalega henni leið allan daginn.“
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist, eins og annar notandi benti á. Sjá má svipað atvik á myndinni hér að neðan: