Í gegnum árin höfum við fylgst með ýmsum stjörnum og afkvæmum þeirra…sum feta í fótspor foreldra sinna og önnur ekki. Kate Hudson er mjög lík mömmu sinni, Goldie Hawn, Zoe Kravitz syngur eins og pabbi, Lenny….og Emma Roberts á móðursystur sem er virkilega þekkt, en það er engin önnur en Julia Roberts.
Nú er hin 13 ára dóttir Friends-stjörnunnar Courteney Cox, Coco Arquette, orðin þekkt en hún hefur leikið í tveimur vinsælum tónlistarmyndböndum. Getur verið hún hafi leikhæfileikana frá mömmu sinni og pabba, David Arquette?
Courteney fékk stóra „breikið“ þegar hún lék í myndbandi Bruce Springsteen „Dancing In The Dark,“ en þar tók Bruce hana úr fjöldanum og dansaði við hana.
Coco lék fyrr á þessu ári í myndbandi MONOGEM, „Wild.“
Fjölskylduvinurinn Foy Vance bjó til lag sem er nefnt eftir henni, „Coco“ – kynntust þau í gegnum kærasta móður hennar, Johnny McDaid, sem er einnig meðlimur hljómsveitarinnar Snow Patrol.
Courteney meira að segja leikstýrði myndbandinu, en hún hefur gert það áður í kynningarmyndbandi fyrir Cougar Town, þætti sem floppaði fyrir nokkrum árum með henni í aðalhlutverki. Coco á greinilega framtíðina fyrir sér! Sjáðu myndbandið: