Í því skyni að verða enn kvenlegri ætlar Caitlyn Jenner að fara í heldur óvenjulega lýtaaðgerð. Flestar konur kannast við hversu þreytandi það getur verið að ganga á háum hælum lengi og hefur Cait nú fengið að upplifa það. Hún er mjög hávaxin fyrir en ætlar að fara í fótaaðgerð.
Auglýsing
Þetta er þó engin venjuleg aðgerð heldur er fita tekin annarsstaðar af líkamanum og sett undir iljar hennar til að mynda eins konar „púða“ og þannig getur hún þolað lengur við á háum hælum. Þar sem Caitlyn er þó mjög hávaxin fyrir (um 188 cm) – verður hún þá ekki enn hávaxnari?
Auglýsing