Ekki hefur mikið frést af stjörnuparinu Michael Douglas og Catherine Zeta Jones að undanförnu. Parið er vissulega að ganga í gegnum erfiða tíma þessa dagana þar sem sonur Michael, Cameron Douglas, hefur komist í kast við lögin…eina ferðina enn. Að þessu sinni braut hann skilorð og náðist með marijúana í fórum sínum, aðeins þremur mánuðum eftir að hafa setið inni í sjö ár bak við lás og slá.
Samkvæmt dómsskjölum sem People greindi frá, sakaði rannsóknaraðili vegna lyfjaprófsins leikarann sem er nú 38 ára um að „reyna að hafa áhrif á útkomuna“ og sagði hann að rannsóknarniðurstöðurnar „sýndu eitthvað sem var ekki í þvagi hans.“
Því var prófað aftur en niðurstöður prófsins voru jákvæðar.
Einnig sést í dómsskjölunum að skilorðsfulltrúar hans höfðu samúð með honum og sögðu dómaranum að „fall væri eingöngu hluti af bataferlinu.“
Við myndum vilja gefa Mr. Douglas tækifæri til að taka þátt í samfélaginu til að sjá hvernig honum reiðir af, sagði einn skilorðsfulltrúanna.
Cameron sem lék í It Runs In The Family sýndi mikla iðrun og sagði að hann hefði engan áhuga á að falla: „Ég vil segja ykkur að síðan ég kom út hef ég unnið mikið í sjálfum mér og ég sé ekki fyrir mér að þetta geti gerst aftur,“ sagði hann við réttarhöldin.
Cameron Douglas var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa heróín undir höndum og að selja metamfetamín. Dómurinn var síðan þyngdur um tvö ár þegar ólögleg efni fundust aftur á honum.