Hönnuðurinn Amina Mucciolo, eða Studio Mucci eins og hún kallar sig, lifir litríku lífi. Að minnsta kosti er íbúðin hennar afskaplega litrík og falleg. Maður ímyndar sér að ekki sé hægt að vera í vondu skapi í svo ánægjulegu umhverfi! Amina elskar alla liti og allt í íbúðinni er úthugsað: „Það skiptir mig miklu að íbúðin endurspegli mig og persónuleika minn, einnig manninn minn,“ segir hún í viðtali við DailyMail. „Við viljum að innbúið sé gefandi, litríkt og skemmtilegt!“
Amina er með 161 þúsund fylgjendur á Instagram, ekki þykir okkur það skrýtið! Kíktu á myndirnar hennar á Instagram.