Pamela Anderson (49) sást á næturklúbbi fara heim með ónefndum manni í Avenue næturklúbbnum í Los Angeles. Pam var í kynþokkafullum, litlum svörtum kjól og virtist skemmta sér vel. Náunginn var ungur, dökkhærður og myndarlegur. Fyrrum Baywatch stjarnan hefur sagst „elska“ stofnanda Wikileaks, Julian Assange, eins og Sykur hefur greint frá og er spurning hvað honum finnst um þetta…
Auglýsing
Dökkhærði, dularfulli maðurinn fór með Pamelu eftir að hafa verið að skemmta sér í næturklúbbinum um klukkan 2:30 og beið eftir bíl handa þeim.
Auglýsing