Ung kona í Brasilíu hélt hún hefði fundið skothelda leið til að smygla eiturlyfjum þegar hún dulbjó sig sem vanfæra konu. Taldi hún víst ekki líklegt að lögreglan myndi leita á barnshafandi konu, en svo var ekki.
Konan er 24 ára, ónafngreind, setti þrjú kíló af kókaíni í gervibumbu og límdi hana utan um sig og fór í föt yfir.
Náðist konan þegar lögregla leitaði í rútu sem hluta af eftirliti á Marechal Rondon hraðbrautinni nálægt Birigui. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá þegar lögreglan lætur hana taka af sér „bumbuna“ og afhenda lögreglunni. Maður með konunni var einnig handtekinn en ekki er vitað hvaða refsingu þau hljóta.