Brad Pitt var einn af mörgum sem kom að kveðja söngvara Soundgarden, Chris Cornell sem lést á dögunum. Dánarorsök virðist vera sjálfsvíg. Chris var borinn til grafar föstudaginn 26. maí. Brad kom einn í jarðarförina og grét þegar hann kvaddi. Chris var borinn til grafar í Hollywood Forever kirkjugarðinum.
Auglýsing
Auglýsing
Pitt er sagður hafa verið sleginn og í áfalli yfir fréttunum af vini sínum en þeir höfðu verið vinir í áratugi: „Ég er Chris Cornell fíkill“ sagði Brad í viðtali við Cinema Confidential árið 2004.
Öll þrjú börn Chris Cornell mættu í jarðarförina ásamt móður þeirra, Vicky Cornell.