Þegar þú hélst að þú hefðir heyrt öll fegrunarráð í bókinni…þá kemur einhver bloggari sem mælir með því að þú fjarlægir fílapenslana með tannþræði! Fegurðarfræðingurinn sjálfsskipaði, Sukhi Mann, setti myndband á Instagram þar sem hún fjarlægir bólurnar með einnota tannþræði.
…og netið fór á hliðina! Milljón manns hafa séð myndbandið nú þegar þannig við ákváðum að deila því með ykkur. Fyrst segir hún fólki að bleyta handklæði með heitu vatni og leggja það á vandamálasvæði. Þannig opnarðu húðina. Best er að gera þetta í fimm mínútur eða svo. Svo tekur hún tannþráðinn…einnota með plasthandfangi. Segir hún svo að það eigi að draga hann eftir húðinni allsstaðar þar sem fílapenslar eru. Svo sýnir hún afraksturinn sem er dálítið svakalegur og ætti eiginlega að vara fólk við því.
Við tökum enga ábyrgð á þessu ráði, en ef það virkar er það mun ódýrara en heimsókn á snyrtistofuna!