…og dóttir ársins er…Mila Kunis! Leikkonan fallega og hæfileikaríka gaf foreldrum sínum, Mark og Elviru, afar fallega gjöf á dögunum – óvænta yfirhalningu á íbúð þeirra í Los Angeles. Síðasti þáttur My Houzz sýndi hina tveggja barna 33 ára móðir ráða sér vart af kæti þegar hún útskýrði hversu vænt henni þykir um þau: „Þau hafa gert svo margt fyrir mig og bróður minn. Og mig langar svo ofboðslega að gefa þeim eitthvað sem þau eiga skilið.“
Mila var komin átta mánuði á leið þegar framkvæmdirnar hófust og hjálpaði eiginmaður hennar Ashton Kutcher mikið til við endurbæturnar á húsinu þar sem Mila hefur búið frá því hún var níu ára. Eftir sex vikna framkvæmdir leit afraksturinn dagsins ljós í meðfylgjandi myndbandi…hafið vasaklúta tilbúna!