Leikkonan Amber Heard (fyrrverandi Johnny Depp) og Elon Musk, eigandi Teslu hafa verið að hittast í rólegheitum en nú eru þau opinberlega orðin par, en það þýðir að þau hafa birt myndir af sér á Instagram og Twitter saman…
Auglýsing
Amber er í Ástralíu að taka upp myndina Aquaman, en Elon kom þangað í óvænta heimsókn. Þau fóru og skoðuðu ástralska náttúru, ástarfuglarnir saman. Einnig fóru þau í mat með leikstjóra myndarinnar, James Wan, á veitingastaðinn Moo Moo. Elon hefur verið afar passasamur með einkalífið á samfélagsmiðlum þannig að pósta mynd með kossi á kinn hlýtur að þýða að hann er ástfanginn.