Fegurðardísin og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er hætt með kærastanum Tyga til eins og hálfs árs eins og Sykur hefur greint frá. Hún er nú aftur komin á markaðinn og lét til sín taka í partýi bestu vinkonu sinnar Stassie Karanikolaou fatafrumsýningu Pretty Little Thing fatalínunnar í The Phoenix, Los Angeles, síðastliðið þriðjudagskvöld.
Hin 19 ára mætti með stæl og þeyttist á dansgólfið með vinum sínum og ekki var að því að spyrja – karlmennirnir flykktust að henni: „Partýið byrjaði reyndar illa þar sem mikil sena var á baðherbergjunum þegar einhverjum gaur var hent út úr kvennaklefanum. Öryggisgæslan var mikil og allir voru að dansa,“ segir sjónarvottur.
Á sama tíma átti Tyga – fyrrverandi Kylie – ekki jafn góðan dag og var fluttur á lögreglustöð grunaður um akstur undir áhrifum.
Kylie sem hefur fengið sinn eigin raunveruleikaþátt á E! hafði ekki áhyggjur af því en talaði við fullt af vonbiðlum í partýinu: „Gaurar féllu um sjálfa sig til að ná tali af henni og vinir hennar voru mjög varkárir. Einn náði þó athygli hennar og spjölluðu þau saman meðan á skemmtiatriðum stóð.“
Vonandi gengur Kylie vel í leitinni!