Kate Middleton hefur nú sett eiginmanni sínum stólinn fyrir dyrnar eftir að hann djammaði heldur mikið með öðrum konum í nýlegri skíðaferð sem átti að vera „bara með strákunum.“ Kate er sögð hafa fengið áfall eftir að myndir af honum birtust þar sem hann var með höndina utan um mitt annara kvenna og henni fannst hún niðurlægð.
Vilhjálmur sást einnig á veitingastað með fyrirsætu eitt hádegið í umræddri ferð til Sviss. Sophie Taylor heitir hún og þau hittust og fengu sér nokkra drykki saman, samkvæmt móður hennar, Joni, í vitali við The Daily Telegraph: „Hún sagði að hann hefði verið mjög jarðbundinn og indæl persóna.“
Parið sást fá sér fleiri en nokkra drykki, bjór, vín, Jagermeister og fleira á Verbier hótelinu þar sem Vilhjálmur og vinir hans gistu. Eftir að hafa farið á skíði í eftirmiðdaginn fóru þau einnig saman á djammið eftir það.