Nýtt par? Eins og margir vita skildu leikaraparið Brad Pitt og Angelina Jolie síðastliðið haust með látum. En Adam var ekki lengi einn í paradís…samkvæmt gulu pressunni er Brad Pitt að hitta bresku leikkonuna Sienna Miller eftir skilnaðinn. Hinn 53 ára leikari sást með Siennu, sem er 35 ára, í miklu daðri á veitingahúsi í Los Angeles þann 5. apríl síðastliðinn: „Þau voru virkilega að njóta þess að eyða tíma saman,“ sagði sjónarvottur: „Þau töluðu saman allt kvöldið og var gott á milli þeirra.“
Brad hefur verið að vinna í sínum málum og hefur mikið gengið á. Hann hefur grennst mikið og hafði fólk áhyggjur en vinur hans segir: „Hann er nú afar glaður, glaðari en hann hefur verið í langan tíma. Það virðist sem hann sé kominn yfir einhverja hraðahindrun.“
Brad og Sienna eru nú að kynna nýju myndina sína, The Lost City of Z, sem fer í kvikmyndahús í Bandaríkjunum þann 14. apríl næstkomandi . Brad skrifaði undir samning til að leika aðalhlutverkið, hlutverk Colonel Percy Fawcett — hermann sem verður ævintýrakönnuður að leita að týndri borg í myrkviðum Amazonfrumskógarins, en svo hætti hann við vegna óskipulags. Síðar samþykkti hann að framleiða myndina. Sienna leikur í myndinni Nina Fawcett, eiginkonu ævintýramannsins. Charlie Hunnam leikur hann í stað Brads.