Hefur þig ekki alltaf langað að búa í kastala? Minnsti kastali Bretlands hefur nú verið settur á sölu og kostar jafn mikið og lítil íbúð í London, eða á tæpar 80 milljónir íslenskar. Eitt svefnherbergi er í kastalanum en hann virkar afar notalegur. Kallast hann „Molly’s Lodge“ og var hannaður af breska arkitektinum Edward Blore í kringum árið 1830.

Edward þessi var framkvæmdastjóri stækkunar Buckinghamhallar fyrir Viktoríu drottningu.

Er þessi kastali staðsettur í Long Compton í Warwickshire, og er umvafinn skógi. Fyrir utan svefnherbergið er dásamleg stofa með arni í viktoríustíl. Eitt baðherbergi er í kastalanum ásamt tvöföldum bílskúr og geymslu sem nú er notuð sem skrifstofa. Löng innkeyrsla er að húsinu sem hefur risastóra eikarhurð. Í garðinum er pollur, grænmetisgarður og hænsnahús.