Justin Bieber hefur verið þekktur fyrir brjáluð partý og mikið djamm, þannig frásögn Nyssu Large af eftirpartý eftir tónleika Bibers í Ástralíu gæti komið eilítið á óvart. Justin valdi sjö stúlkur til að koma með á einkasnekkju þar sem þau voru fram á nótt.
Nyssa Large var ein af þessum heppnu stúlkum sem fór í partýið á snekkjunni í Melbourne. Hún er söngkona/leikkona og fyrirsæta og ber Justin ekkert nema vel söguna: „Það vorum bara við og teymið hans og bestu vinir…við fórum í drykkjuleiki. Við sátum og spjölluðum og töluðum um tónleikana og hvað hver og einn gerði.“ Sagði Nyssa að Justin hefði verið mun fullorðinslegri en áður og jafnvel dálítið varkár. Hún sagði að hann væri „yndislegur“ og auðvelt að tala við hann.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Nyssa hittir Justin en þau djömmuðu saman árið 2015 þegar hann kom til Ástralíu. Fékk hún holskeflu hatursbréfa yfir sig frá afbrýðisömum aðdáendum en hún hefur alltaf varið hann og sagt hann vera mjög mikinn herramann.