Að auka brennslu er áhugamál margra og hægt er að nýta sér náttúrulegar aðferðir til þess. Ýmsar fæðutegundir gera þetta en best er að athuga hvaða krydd þú ert að nota í matinn. Vísindamenn í háskólasjúkrahúsinu í Íran rannsökuðu 88 konur í yfirþyngd. Var þeim skipt í tvo hópa í þrjá mánuði og borðuðu þær allar það sama. Eini munurinn á öðrum hópnum var að þær borðuðu 3 grömm af kúmeni á dag (broddkúmen, cumin, ekki cummin.)
Þær blönduðu kúmeninu saman við 140 ml af jógurt og borðuðu það daglega á fastandi maga. Hinn samanburðarhópurinn borðaði líka jógúrt en sleppti kúmeninu.
Fyrsti hópurinn sýndi ótrúlegan mun strax eftir einn mánuð: Þær léttust sex kílóum meira en hinn hópurinn að meðaltali og 14,64% fitu á meðan hinn hópurinn var í 4,91% fituprósentu.
Kúmen er hátt í efni sem kallast filosterol, sem vinnur á kólesteróli í líkamanum. Það er einnig ástæða þess að það hraðar brennslu og hjálpar til við að missa kíló!
Prófaðu þetta ef þú vilt auka brennsluna!