Love Magazine fékk Kendall Jenner til að sitja fyrir hjá sér og gera ögrandi myndband í leiðinni. Kendall leikur Marilyn og dansar í nærfötum frá Le Perla og retró sundfötum með hárið afar líkt leikkonunni sálugu…tja, þó það sé dökkt.
Syngur hún „Diamonds Are a Girl’s Best Friend,“ ásamt öðrum setningum sem gyðjan lét frá sér fara. Sjáðu myndbandið!