Breskar stjörnur hafa margar hverjar sent fórnarlömbum hryðjuverkaárásinnar í London á miðvikudaginn samúðarkveðjur og lét söngkonan Adele sitt ekki eftir liggja. Hún er á tónleikaferðalagi í Ástralíu og á tónleikum í Auckland, Nýja-Sjálandi, sagði hún við áhorfendur að hún vildi að heimabær sinn myndi „sjá ljósin okkar og heyra í okkur.“ Tileinkaði hún fórnarlömbum árásarinnar gæsahúðarflutning á laginu Make You Feel My Love.