Til hamingju! RuPaul er sennilegasta frægasta dragdrottning í heimi og hann er genginn út! Uppljóstraði hann þessu í viðtali á miðvikudagsmorgun í Hollywood Today Live. RuPaul sem hefur stýrt hinum óstjórnlega vinsælu raunveruleikaþáttum undanfarin misseri RuPauls Drag Race gekk að eiga maka sinn til 23 ára, bóndann Georges LeBar.
Segir RuPaul: „Ég hitti hann á dansgólfinu á Limelight árið 1994. Það var afmælisdagurinn hans þannig við giftum okkur á daginn hans – afmæli þess sem við hittumst,“ í viðtali við Ross Matthews og Amanda Salas í meðfylgjandi myndbandi.
Fréttirnar koma aðeins tveimur vikum áður en að níunda sería þáttanna er frumsýnd, og vitað er að aðdáendur eru að missa sig yfir nýjustu seríunni!