Tískudrottningin Victoria Beckham mun frumsýna fatalínuna sína í Target eftir mánuð. Til að sýna hvað hún hefur fram að færa stríðir hún aðdáendum á síðunni sinni með lítilli mynd. Fatalínan mun vera fyrir konur og börn og eru fyrirsæturnar af öllu tagi.
Hönnuðurinn sem er í samstarfi við verslunarrisann Target, birti líka meðfylgjandi mynd á Instagram til að sýna hvað koma skal.
Blómamynstur, bomber jakkar, skokkar og skyrtur. Bæði Victoria og dóttir hennar Harper hafa sést í fötunum sem lofa góðu! Línan fer í sölu þann 8. apríl næstkomandi.
Thank u American @instylemagazine for my April cover! How cute do the girls look in my #VBxTarget collection?! Sign up to my newsletter for updates on my @target collaboration x VB victoriabeckham.com/target A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on