Það er allt á öðrum endanum í förðunarheiminum þessa stundina því Kylie Cosmetics hefur kynnt til sögunnar nýjan highlighter – Kylighter! Einnig eru á leiðinni Kyliner, Kyshadow og Kybrow (eyeliner, augnskuggi og sett fyrir brúnir). Kylighter fer í sölu þann 28. febrúar næstkomandi, sex mismunandi litir og verður að segjast eins og er að litirnir eru afar „girnilegir“ enda heita þeir nöfnum eins og Banana Split og Salted Caramel!