Átta ára tvíburar Lisu Marie Presley, dóttur söngvarans sáluga, Elvis Presley var komið fyrir hjá barnaverndaryfirvöldum í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum eftir að upp komst um föður þeirra, Harper Lockwood. Fundust afar óviðurkvæmlegar myndir og myndbönd af börnum í tölvunni hjá honum.
Lisa Marie og Harper eru í miðju skilnaðarferli og áttu tvíburarnir að vera hjá barnaverndaryfirvöldum til 17. mars næstkomandi en samkvæmt Radar hefur Pricilla Presley, amma barnanna tekið þær að sér. Priscilla sem er 71 árs birti mynd af glöðum tvíburum, þeim Harper og Finley, á Facebooksíðu sinni og segir: „Ég þakka ykkur frá mínum dýpstu hjartarótum fyrir allan jákvæðan stuðning.“