Ástralski leikarinn Hugh Jackman hefur nú tjáð sig um baráttu sína við húðkrabbamein. Sjötti fæðingarbletturinn var fjarlægður af nefi hans á dögunum, en það er í annað skipti sem fæðingarblettur er tekinn af nefi hans.
Leikarinn setti þessa mynd á Instagram – með plástur á nefinu og hvetur hann alla að nota sólarvörn: „Í annað sinn að berjast við frumukrabba. Ég þakka reglulegum heimsóknum til lækna og frábærri þjónustu að allt fer vel. Þetta lítur verr út en það er. Ég sver! #wearsunscreen“
Auglýsing
Eins og áður sagði er þetta í sjötta sinn sem hann hefur látið fjarlægja af andlitinu á tveimur árum.