Leikkonan Pamela Anderson hefur nú uppljóstrað því að hún á í sambandi við Julian Assange, stofnanda WikiLeaks. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hana tjá sig við Loose Women Today og var hún spurð um hugsanlegt ástarsamband við Julian. „Ég er alltaf að gera eitthvað, reyni á hverjum degi, til dæmis að eignast vinskap við mikilvægt fólk í heiminum eins og Julian Assange. Hann er afar merkilegur einstaklingur og ég held að í sögubókum verði horft til hans og því veitt athygli hvað hann hefur gert fyrir heiminn. Ég tel að WikiLeaks séu mjög athyglisverð samtök og mikilvæg, þetta eru sannar fréttir,“ segir Pamela í viðtalinu.
„Það er erfitt að finna sannar fréttir nú til dags en ef þú ferð á WikiLeaks geturðu í raun og veru séð hvað er í gangi í heiminum. Það er mjög nauðsynlegt í því pólitíska landslagi sem við búum við í dag,“ sagði Pamela í viðtalinu.
Pamela sem hún er 49 ára gömul hefur heimsótt Julian í sendiráð Ekvador í London fimm sinnum á síðustu fjórum mánuðum. Í viðtali við Page Six sagði nafnlaus heimildarmaður: „Það virðist sem í hvert skipti sem hún kemur klæðist hún æ kynþokkafyllri klæðnaði.“
Pamela sást í desember færa Julian mat í kringum jólahátíðina. Hún hefur einnig heimsótt hann tvisvar í janúar 2017.