Scott enn við sama heygarðshornið: Myndir náðust af honum í sjóðheitu keleríi með fallegri fyrirsætu í Miami á mánudaginn síðasta. Eins og Sykur hefur greint frá var parið nýtekið aftur saman, og það sem meira er – Scott hafði verið á Costa Rica með fjölskyldunni um helgina! Scott og Kourtney hafa reynt allt til að laga sambandið því þau eiga þrjú börn saman og getgátur voru um að Kourtney gengi með fjórða barnið.
Myndirnar sem um ræðir eru afar heitar – Scott og fyrirsætan Jessica Harris, betur þekkt sem J Lynne, voru virkilega náin í sundlaug í Miami, Bandaríkjunum. Scott á sér sögu um framhjáhald og er greinilega ekkert á því að hætta, enda sýna meðfylgjandi myndir að hann var líka að kúra hjá fleirum…
Þú getur smellt á myndirnar til að sjá þær stærri