Hinir þjáðu foreldrar Madeleine McCann vonast nú til að nýjárskraftaverk muni láta þau hitta hina týndu dóttur sína á ný, en nú eru 10 ár liðin síðan Madeleine hvarf frá hóteli í Algarve, Portúgal. Kate og Gerry hafa aldrei gefið upp vonina að hitta dóttur sína á ný sem rænt var af hótelherbergi árið 2006 og hafa ýmsar vísbendingar farið á víxl í fjölmiðlum og annarsstaðar sem þau hafa haft áhuga á að kanna nánar. Engin vísbending hefur þó náð að færa þeim dóttur þeirra aftur eins og þau vonuðust eftir…þau trúa þau enn á kraftaverk.
Enn ein jólin hafa liðið án þess að Madeleine komi í leitirnar og hafa tímarnir verið afar erfiðir fyrir foreldrana Kate og Gerry. Þau vilja þó varpa fram hróp á hjálp þar sem þau hafa ekki gefið upp alla von að dóttir þeirra finnist á lífi þrátt fyrir að áratugur hafi liðið.
Rannsakendur telja að Madeleine hafi verið numið á brott af barnaníðingshring. Foreldrar hennar hafa sent út þessi skilaboð: „Einhver veit. Við viljum bara að einhver finni hjá sér hugrekkið og samúðina til að láta okkur vita.“