Kanye West er kominn aftur til New York borgar og virðist vera á batavegi eftir spítalainnlögn og umrót síðustu vikna þar sem hann m.a. hætti við tónleikaferðalagið sitt. Kanye er nú orðinn ljóshærður og flaug til New York með kærasta Kris Jenner, Corey Gamble. Gisti hann á Waldorf Astoria hótelinu og var í gráum joggingbuxum og hettupeysu í bomber jakka.
Fór Kanye í heimsókn í fjármálahverfið og einnig í stúdíó þar sem hann veifaði aðdáendum sínum og gerði friðarmerki með fingrunum. Sagt er að hann stefni á að halda tónleikaferðalaginu sínu í janúar.
Auglýsing