Helga Braga, ein fyndnasta kona landsins, fór í gærkvöld á Friðarmáltíð Spessa með vinkonum sínum sem hún sagði að hefði verið „algjörlega æðisleg!“
Svo segir hún: „Á leiðinni heim var ég stoppuð af lögreglunni og látin blása! Nú… þar sem Edda Björgvins sat í aftursætinu þá spurði ég auðvitað hvort hann vildi ekki bara sjá á mér brjóstin líka? Lögreglumaðurinn var mjög kátur!“
Eins og kunnugt er, er einn fyndnasti skets allra tíma með Eddu Björgvins í aðalhlutverki og fjallar hann einmitt um þetta…fyrir þá sem ekki vita!