Madonna og Sean Penn skildu árið 1989 eftir fjögurra ára hjónaband. Nú hefur Madonna boðist til að giftast leikaranum aftur en þá fyrir rétt verð!
Madonna kom fram á sviði Art Basel góðgerðasamkomu í Miami og var að bjóða upp hluti til að safna fé fyrir Malawi sem er eitt fátækasta land Afríku. Aðrar stjörnur á svæðinu voru Leonardo DiCaprio, James Corden og hennar fyrrverandi – Sean Penn. Fólki var frekar brugðið þegar hún sagði: „Ég elska þig enn,“ eins og People greinir frá.
Söngkonan bauðst til að giftast Sean aftur ef hann byði $150,000 í einn hlutanna sem var á uppboði. Parið vakti síðan mikla athygli þegar Sean handjárnaði sig við mitti Madonnu. Þau virðast allavega vera enn á góðum nótum, það er á hreinu hvert sem framhaldið verður.