Þau voru gift í sjö ár og hafa ekki gleymt tilfinningunum til hvors annars. Jennifer Lopez og Marc Anthony hafa nú náð saman á ný eftir að hafa komið fram á Latin Grammy verðlaunahátíðinni þar sem þau deildu sjóðheitum kossi á sviði eftir að hafa sungið saman lagið „Olvídame y Pega la Vuelta.“
Marc er nýskilinn við konu sína Shannon De Lima en þau voru gift í tvö ár og Jennifer hætti með kærastanum Casper Smart eftir að hann stóð í framhjáhaldi.
Söngfuglarnir frá Puerto Rico urðu því óvænt einhleyp á sama tíma. Eins og margir vita er Marc faðir tvíbura þeirra, Emme og Max en þau eru orðin átta ára. Segja margir að Marc hafi alltaf verið stóra ástin í lífi Jlo en hún hefur átt marga þekkta kærasta. Hafa þau þó alltaf haldið nánu sambandi síðan þau skildu árið 2011.