Hún hefur verið kölluð lifandi brúða enda hefur hún undirgengist ótrúlega margar skurðaðgerðir til að öðlast hið fullkomna lúkk að hennar mati. Pixee, eins og Sykur hefur fjallað um, á erfitt með að lifa lífinu á eðlilegan hátt vegna aðgerðanna, en hvað finnst fjölskyldu hennar um allar aðgerðirnar?
Í meðfylgjandi myndbandi er Pixiee fylgt eftir til Svíþjóðar þar sem hún fer í „butt-lift“ aðgerð. (Athugið, ekki fyrir viðkvæma áhorfendur).
Síðan hittir hún systur sína og svo fjölskyldu sem hefur ekki séð hana lengi, en þau búa í úthverfi Gavle. Hvernig myndir þú bregðast við ef fjölskyldumeðlimur myndi hafa farið í eins margar aðgerðir og hefði breytst á svo dramatískan hátt?