Kanye West hefur verið lagður inn á spítala vegna ofálags. Hefur hann aflýst öllum tónleikum fram að áramótum og hefur furðuleg hegðun hans komið fólki í opna skjöldu. Kim Kardashian West, eiginkona hans, flaug um leið yfir landið en hún var á góðgerðasamkomu í New York. Kom hún um leið og henni var tjáð að málið væri alvarlegt.
Aðdáendur hafa klórað sér í höfðinu vegna hegðunar hegðun rapparans undanfarna daga. Dagur er liðinn síðan Kanye aflýsti öllum tónleikum sem átti að halda árið 2016, þeir síðustu áttu að vera á jóladag. Yfirlýsing frá miðasölunni segir að allir fái miðana sína endurgreidda.
Á tónleikum sem fram fóru síðasta fimmtudagskvöld í San Jose í Kaliforníu sagði Kanye að hann hefði ekki kosið í síðustu kosningum: „En ef ég hefði gert það hefði ég kosið Donald Trump.“ Einnig sagði hann að hann vildi að svartir Bandaríkjamenn myndu hætta að tala um kynþáttamismunun.
Á laugardag lauk rapparinn tónleikum í Sacramento, Kaliforníu eftir að hafa einungis flutt tvö lög og talað heil ósköp um Hillary Clinton, Google, Facebook, Beyonce og Jay Z. Daginn eftir hætti hann við tónleika í Los Angeles.
Meira að segja Snoop Dogg (sem segist reykja kannabis) skilur ekki „á hverju Kanye eiginlega er.“ Þetta myndband hefur farið út um allt á netinu: