Kendall Jenner fékk einn afar velkominn afmælisgest í veisluna sem haldin var henni til heiðurs á dögunum – fyrrverandi kærastinn Harry Styles! Söngvarinn í One Direction mætti og áttu þau dýrmæta stund saman.
Harry Styles, 22, og Kendall Jenner, 21, eru ekki saman en þau eru enn góðir vinir.
Áhugavert þykir að tveir af þeim sem Kendall hefur verið orðuð við Jordan Clarkson og Travis Scott, voru báðir í veislunni. Jordan kom seint þar sem hann spilaði leik með Lakers í Atlanta fyrr um kvöldið en Kendall var sögð afar glöð að sjá hann og hljóp til hans og fagnaði þegar hún sá hann.
Auglýsing
Kylie þótti afar djarflega klædd og var mörgum á orði að hún hefði „stolið senunni“ frá systur sinni. Allt klanið var svo mætt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, þó ekki hafi náðst mynd af Kim sem sögð er hafa mætt einnig.
Auglýsing