Býrð þú við ofbeldi í sambandi? Þekkir þú einhverja sem býr við ofbeldi í sambandi? Hér eru nokkur atriði sem vert er að athuga ef konur búa við ofbeldi í samböndum (athugið að hér er eingöngu verið að tala um ofbeldi karla gegn konum, þó að sjálfsögðu beiti konur ofbeldi líka.)
Einangrun:
- Kemur í veg fyrir að hún geti sótt vinnu, skóla, félagsstarf, tómstundastarf.
- Kemur í veg fyrir að hún hitti/eigi samskipti við fjölskyldu og/eða vini.
- Tekur af henni persónuskilríki, greiðslukort, ávísanahefti, ökuskírteini og fleira þess háttar.
- Eltir hana, fylgist með henni.
- Opnar póstinn hennar.
- Notar símnúmerabirti til að fylgjast með hverjir hringja í hana.
- Hringir stöðugt heim til að vita hvort hún er heima.
- Fjarlægir símann.
- Spyr í þaula hvar hún hafi verið, hvað hún hafi verið að gera og hverja hún hafi hitt. Tortryggir gjarnan svörin.
Efnahagsleg stjórnun:
- Takmarkar aðgang hennar að peningum.
- Skammtar peninga, sem varla (eða ekki) duga fyrir nauðsynlegustu útgjöldum.
- Þvingar hana til að biðja um hverja krónu og/eða gera grein fyrir hverri krónu.
- Segir ósatt um stöðu fjármálanna, eða heldur fjármálunum leyndum.
- Kemur í veg fyrir að hún starfi utan heimilis, eða ráðstafar launum hennar.
- Tekur af henni peninga s.s. inneign í bankabók, arf o.fl.
- Kemur í veg fyrir að hún hafi greiðslukort, banka- eða ávísanareikning.
- Ráðstafar einn, og oft án hennar vitundar, sameiginlegum peningum þeirra.
Hótanir:
- Ógnar/hótar henni án orða s.s. með bendingum, hreyfingum eða svipbrigðum.
- Kastar/eyðileggur hluti.
- Eyðileggur persónulegar eigur hennar – og/eða annað sem henni er kært.
- Meiðir eða fargar gæludýrum á heimilinu.
- Meðhöndlar hnífa, vopn eða aðra hluti til að ógna henni.
- Hótar að drepa hana eða börnin.
- Hótar að fyrirfara sér.
- Hótar að láta reka hana úr landi, ef hún er af erlendum uppruna.
- Hótar að láta leggja hana inn á geðdeild.
- Hótar að segja „öllum” hvað hún er „geðveik.“
- Auglýsing
Tilfinningaleg kúgun:
- Brýtur hana niður.
- Hrópar/öskrar á hana.
- Uppnefnir hana, gerir lítið úr því sem hún gerir, hæðist að henni.
- Gagnrýnir hana, setur stöðugt út á hana og verk hennar.
- Niðurlægir hana fyrir framan aðra.
- Lætur hana finna fyrir vanmetakennd og að hún sé heimsk eða barnaleg.
- Telur henni trú um að eitthvað sé að henni t.d. geðveiki.
- Stöðugar ásakanir, m.a. ásakar hann hana fyrir mistök sem hann sjálfur gerir.
- Ruglar raunveruleikanum, m.a. með því að segja að hennar upplifanir, útskýringar og túlkanir séu rangar.
Kynferðisleg misnotkun:
- Spottar/niðurlægir hana kynferðislega.
- Þvingar hana til kynlífsathafna, sem hún er mótfallin.
- Hótar að misbjóða börnunum kynferðislega.
- Þvingar hana til að horfa á klámmyndir og/eða skoða klámblöð.
- Nauðgar henni, eða hótar nauðgun.
Líkamlegt ofbeldi:
- Ýtir, hrindir eða slær til hennar.
- Snýr upp á útlimi.
- Heldur henni fastri, varnar útgöngu.
- Lemur hana, brennir hana.
- Skaðar hana t.d. með hnífi, barefli, belti, ól eða öðru þess háttar.