Vatnslitað? Einhyrningahár? Regnbogahár? Hvað sem það kallast hefur marglitað hár á borð við þetta verið afar vinsælt á Instagram í nokkur ár. Það þýðir hinsvegar ekki að við séum búin að fá nóg af því – þetta er meiri klassík að okkar mati og enn í uppáhaldi.
Þetta myndband frá Pravana sem sýnir ljóshærða konu öðlast einmitt þesskonar hár sýnir tæknina við litunina. Ýmsum litum er bætt í hárið lárétt á hinum og þessum stöðum til að búa til hreyfingu.
Auglýsing
Ef þetta heillar þig ættirðu að sýna hárgreiðslumeistaranum þínum þetta næst þegar þig langar að breyta til!