Stjörnuparið Gwen Stefani og Blake Shelton langar bæði í stúlkubarn og ætla að gera hvað sem er til að það muni verða að veruleika. Þau munu nú fara í tæknifrjóvgun til að reyna að eignast barn á náttúrulegan hátt en ef það mun ekki takast ætla þau að ættleiða. Life & Style greinir frá þessu.
„Þau ætla með þetta alla leið,“ segir vinur parsins. „Það gæti verið ungabarn eða eldra barn. Sama hvað vilja þau halda á lítilli stúlku fyrir lok ársins 2017.“
Blake hefur staðið sig vel í föðurhlutverkinu. Fyrr í mánuðinum sást hann í Disneyland með Gwen (47 ára) og sonum hennar þremur, Kingston 10 ára, Zuma 8 ára og Apollo sem er tveggja.